Ferðasagan út
Sumarið 2006 leið án mikilla tíðinda úr skákheimum. Þegar leið að því, að skráningarfrestur á Evrópumót taflfélaga – Meistaradeild Evrópu – 2006 væri að renna út, höfðu þrjú íslensk taflfélög annað hvort skráð sig eða lýst yfir áhuga á þátttöku. Taflfélag Reykjavíkur var ekki eitt þeirra.
Ástæða þess, að T.R.-ingar höfðu ekki tekið af skarið, var einkum sú, að fyrri ferðum taflfélagsmanna á þetta mót hafði fylgt gríðarlegur kostnaður. Taflfélagið hafði þá greitt allan kostnað fyrir skáksveit sína og reyndist ekki hafa burði til þess þetta skiptið, enda lítið af peningum til í kassanum, eins og svo oft áður frá 1990, þegar félagið réðist í að kaupa félagsheimili að Faxafeni 12.
Allt stefndi í, að Vestmannaeyingar, Haukamenn og þá e.t.v. Hellismenn myndu tefla í Meistaradeildinni fyrir Íslands hönd. En skyndilega, á síðustu stundu, ákvað stjórn félagsins, að tillögu formannsins, Óttars Felix Haukssonar, að senda lið til keppni, hefðu sterkustu skákmenn félagsins áhuga á að fara og myndu greiða fyrir ferðina sjálfir, en fá á móti tilstyrk frá T.R., eins og þeir væru að fara á hefðbundið skákmót og ættu rétt á að fá, miðað við styrkjareglur félagsins. Reyndin varð, að mikill áhugi reyndist á þátttöku. T.R. ákvað því að skrá sig til leiks, en þar eð Vestmannaeyingar hættu við þátttöku, kom Hellir inn í staðinn. Þrjú lið fóru því á Evrópumótið þetta skiptið: Íslandsmeistarar T.R., bronslið Hauka og síðan sveit Hellis, sem lent hafði í fjórða sæti á Íslandsmóti skákfélaga 2006. Til Fügen Það var snemma morguns 6. október, að liðsmenn úr sveitunum þremur mættu á Keflavíkurflugvöll, flestir frekar syfjaðir. T.R.-ingar höfðu pantað „minivan” leigubíl, sem sótti skákmennina, eina af öðrum, en Evrópusveit T.R. er kynnt hér annars staðar á síðunni. Sveitirnar þrjár stigu síðan á fast land aftur í Frankfurt, þar sem áætlunin var sú, að leigja bílaleigubíl og aka síðan suður til Austurríkis. Hellismenn tóku fljótlega forystuna, með hinn brjálaða ökumann Björn Þorfinnsson við stýrið, en T.R. lögðu af stað nokkuð seinna en hinar sveitirnar og ráku því lestina. Við stýrið sat Bergsteinn Einarsson, liðsstjóri sveitarinnar, og ók hann af fádæma öryggi alla leið suður. Komum við strákarnir til Fugen þegar nokkuð var liðið á kvöld. Þá kom í ljós, að einhver ruglingur hafði orðið með hótelpantanir og stóðu menn í stappi fram eftir kvöldi, en málin redduðust að lokum og allir komust í herbergi. T.R.-ingar og Haukamenn gistu á fínu fjögurra stjörnu hóteli, þar sem aðstæður voru til mikillar fyrirmyndar. Þetta hótel var hið „opinbera” hótel keppninnar. Hellismenn gistu þar skammt frá og var það hótel einnig afar gott, en töluvert minna. En hvað sem öðru leið voru íslensku sveitirnar tilbúnar í slaginn og árangurinn lét ekki á sér standa. |



