Póstlistaskráning
Póstlistaskráning
Skráđu netfangiđ ţitt og fáđu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá
Dagatal
September - 2010
S M Ţ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>

Taflfélag Reykjavíkur er elsta, virtasta og eitt af öflugustu skákfélögum landsins. Félagið er margfaldur Íslandsmeistari skákfélaga, síðast 2008. Aðsetur félagsins er að Faxafeni 12.


Þar er skák stunduð af miklum móð, skákmót haldin, æfingar fyrir unglinga og margt, margt fleira.

                            Fimmtudagsmótin hefjast 16. september.

Laugardagsæfingarnar hefjast 11. september.

Pistlar laugardagsæfinga veturinn 2009-2010.

 

Vefsíða Taflfélags Reykjavíkur er keyrð á vefumsjónarkerfi Allra Átta ehf.

 

 

 

 

 

Meistaradeild Evrópu 2007

 

1987 - 20 ár frá fyrstu þátttöku - 2007

 

Meistaradeild Evrópu í skák 2007 verður haldin í Kemer-Antalya í Tyrklandi dagana 2.-10. október. Taflfélag Reykjavíkur mun taka þátt að þessu sinni, eins og svo oft áður.
 

Á síðasta ári kom T.R. nokkuð á óvart með góðri frammistöðu, en skáksveit félagsins lenti þá í 5.-12. sæti, sem er afbragðs árangur, sér í lagi vegna þess, að aðeins einn stórmeistari tefldi með liðinu. En T.R.-ingar stóðu sig vel, í hópi sterkustu skákliða heims, en þau, sem talin voru meðal 30 bestu sveitanna, voru algjörlega eða nær alveg skipuð stórmeisturum.

 

Stefán Kristjánsson náði þar sínum þriðja og síðasta áfanga að stórmeistaratitli.

 

Upplýsingar um Meistaradeild Evrópu 2007

 

Meistaradeild Evrópu 2007: word skjal
Vettvangur mótsins, upplýsingar um hótel og þ.h.

 

 

Evrópulið T.R. 2007

Evrópulið T.R. hefur verið valið. Sveitina skipa sex aðalmenn og einn varamaður/fararstjóri/fyrirliði (captain).

1. Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistari
2. Igor Alexandre Nataf stórmeistari
3. Þröstur Þórhallsson stórmeistari
4. Stefán Kristjánsson alþjóðlegur meistari
5. Arnar E. Gunnarson alþjóðlegur meistari
6. Jón Viktor Gunnarsson alþjóðlegur meistari

1v. Snorri G. Bergsson FIDE-meistari