Póstlistaskráning
Póstlistaskráning
Skráđu netfangiđ ţitt og fáđu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá
Dagatal
September - 2010
S M Ţ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>

Taflfélag Reykjavíkur er elsta, virtasta og eitt af öflugustu skákfélögum landsins. Félagið er margfaldur Íslandsmeistari skákfélaga, síðast 2008. Aðsetur félagsins er að Faxafeni 12.


Þar er skák stunduð af miklum móð, skákmót haldin, æfingar fyrir unglinga og margt, margt fleira.

                            Fimmtudagsmótin hefjast 16. september.

Laugardagsæfingarnar hefjast 11. september.

Pistlar laugardagsæfinga veturinn 2009-2010.

 

Vefsíða Taflfélags Reykjavíkur er keyrð á vefumsjónarkerfi Allra Átta ehf.

 

 

 

 

 

Fügen 2006

 

Bærinn Fügen í austurríska Týról stendur á afskaplega fallegum stað, í hlíðum fjalls í Zillerthal-dal. Hótelin, þar sem keppnisliðum dvöldu, stóðu efst í bænum, þaðan sem sást vel til allra átta og leiðir lágu upp á fjallstinda.

 

En þetta var þó þrátt fyrir allt einskonar sveitaþorp, eins og sást best á því, að kýr voru á beit nokkra metra frá hóteli því, sem T.R.-ingar gistu. Og fyrsta morguninn vaknaði 6. borðsmaðurinn við að bjölluhljóm og þegar hann leit út af svölunum sá hann kúasmala reka hjörð sína framhjá hótelinu.

 

Aðstæður voru til mikillar fyrirmyndar á þessum stað og sögðu mér, undirrituðum, vanir menn, að þetta væri það besta, sem hingað til hefði verið í boði á Evrópumóti taflfélaga. Til að mynda var matsalurinn glæsilegur og vel búið að mönnum í fæði, þjónustan góð og allir brosandi.

 

Elstu menn Evrópuliðsins, gamlingjarnir á 1. og 6. borði, fengu sitt hvort sérherbergið, en Arnar og Bergsteinn liðsstjóri voru saman í herbergi, og Jón Viktor og Stefán. Héðinn, sem er búsettur í Þýskalandi, hafði sjálfur séð um að panta sér herbergi. Undirritaður var með fallegt herbergi á jarðhæð, en Þröstur var með eins herbergi á 2. hæð. Herbergi okkar sex voru í hliðarhúsi, sem tengt var við aðalbygginguna með undirgöngum.
 

 

Menn gerðu sér ýmislegt til dundurs á milli skáka. Undirritaður fór m.a. í sund flesta dagana, og hið sama gerði Héðinn. Vér fórum einnig í gufubað og ástunduðum ýmis þægindi. Aðrir liðsmenn hvíldust eða skruppu jafnvel inn til Innsbruck, sem var svona í Selfoss-fjarlægð frá Zillerthal. Þá kom sér vel að hafa yfir að ráða bílaleigubíl. Liðsmenn annarra sveita höfðu svipaðar áætlanir, nema hvað Haukamenn voru duglegari við að aka á fjöll og skoða sig um.

 

 

Þarna var svosem ekki margt að skoða og menn jafnan ófúsir að taka sér fyrir hendur meiri háttar skoðunarferðir, enda var hitinn þarna með mesta móti fyrir þennan árstíma. Einn morguninn gekk undirritaður niður í þorp og komst heim aftur við illan leik, með langa lýsisslóð upp brekkuna. Þetta var næstum því eins og að ganga á Esjuna.

 

 

Keppnisstaðurinn var í miðri hlíðinni og þáðum við gjarnan far með bílaleigubílnum, í stað þess að ganga. Nokkuð þröngt var á skákstað, enda mikill fjöldi sveita, en einnig var nú keppt í kvennaflokki. En þetta „reddaðist” allt saman, eins og venjulega.


Myndir frá 1. umferð
Myndir frá 2. umferð
Myndir frá 3. umferð
Myndir frá 4. umferð
Myndir frá 5. umferð
Myndir frá 6. umferð
Myndir frá 7. umferð

 

 

Það var mjög ánægjulegt, að þarna voru Íslendingarnir að stærstum hluta til einn hópur. Liðsmenn sveitanna héldu sig saman eins og kostur var, en það skemmdi aðeins fyrir, að Hellismenn voru, að Hannesi Hlífari undanskildum, á öðru hóteli og gátu því ekki tekið þátt í hinum skemmtilegu samverustundum yfir hinum fjórrétta kvöldverði, sem boðið var upp á. Flestir hittust síðan á kaffihúsi aðalhótelsins, þar sem spáð var í mótherja komandi dags og rennt yfir sigra og vonbrigði dagsins.

 

 

Einn keppenda, Halldór B. Halldórsson úr Haukum, var þó í furðulegri stöðu, en hann hafði komist með um bakdyrnar, þar sem hann þurfti að taka mikilvægt próf á miðju móti, en samdi um, að fá að taka það gegnum internetið í virðulegri fræðastofnun í Innsbruck. Hann sat því við skólabækurnar fyrstu kvöldin og missti úr umferð, meðan hann sinnti hinum akademísku skyldum. Þetta ku vera einsdæmi í sögu Evrópumótanna.

 
Nokkrir keppenda kenndu sér meins og missti Arnar E. Gunnarsson úr eina umferð vegna veikinda, en hann hafði þá áður harkað af sér eina umferð fárveikur. Annars leið mönnum jafnan vel í þessu fallega þorpi og sneru heim, rúmri viku eftir brottför, glaðir í bragði eftir skemmtilega ferð og góðan árangur.
 

 

Um framvindu mótsins og árangur einstakra manna má benda á mótstöfluna, en þar má sjá úrslit einstakra liðsmanna sveitanna, lokastöðu þeirra og aðrar helstu upplýsingar.

 
SGB