Reykjavíkurmót grunnskólasveita
Reykjavíkurmót grunnskóla er eitt af skemmtilegustu mótum, sem Taflfélag Reykjavíkur heldur ár hvert. Þar safnast jafnan saman efnilegustu skákmenn Reykjavíkur og etja kappi saman í liði.
Núverandi fyrirkomulag var tekið upp 1978, en áður hafði verið keppt í tveimur riðlum. Það ár sigraði Álftamýrarskóli, en í liðinu voru þá, ef rétt er munað, Jóhann Hjartarson, Árni Á. Árnason, Páll Þórhallsson, Lárus Jóhannesson og Gunnar Freyr Rúnarsson. Þessi hópur hafði yfirburði fyrstu árin. Æfingadeild K.H.Í. náði síðan að komast á blað 1981, og hafði m.a. innanborðs Hrafn Loftsson, Jóhannes Ágústsson, Jón Þór Bergþórsson og fleiri. Gott ef Eyjólfur sjálfur var ekki þarna líka. Annars finnst mér ég gleyma einhverjum sterkum skákmanni. Vinsamlegt látið vita!
En þá tók við tími Hvassaleitisskóla, sem hafði gjarnan verið krónprins mótsins, en á þessum árum var skák mjög vinsæl í skólanum, sem var næsti nágranni Taflfélags Reykjavíkur og lá stígurinn frægi frá skólanum beint að félagsheimili T.R. á Grensásveginum. Meðal keppenda Hvassaleitisskóla á þessum árum voru Jóhannes Gísli Jónsson, Þórssynir, Arnór heitinn Björnsson, þeir bræður Björn Sveinn og Tómas Björnssynir, Snorri G. Bergsson og síðar Þröstur Þórhallsson og Héðinn Steingrímsson. Fellaskóli, með Hannes Hlífar á fyrsta borði, tókst þó að sigra 1984, þrátt fyrir mun veikara lið á pappírnum.
Síðan tók við Breiðholtsævintýrið, fyrst með Seljaskóla, þar sem Þröstur Árnason og Sigurður Daði Sigfússon voru í fararbroddi, og margir aðrir sterkir skákmenn á neðri borðunum, en aðrir skólar í Breiðholtinu voru líka sterkir á þessum árum. 1990 sigraði Hagaskóli, með Héðin Steingrímsson í fararbroddi og 1991 Hólabrekkuskóli, með Magnús Örn Úlfarsson og fleiri sterka menn innanborðs.
En þá upphófst gósentíð Æfingaskólans, eins og skólinn hét nú. Í sveit skólans tefldu m.a. Arnar E. Gunnarsson, Páll A. Þórarinsson, Oddur og Davíð Ingimarssynir, Björn og Bragi Þorfinnssynir og fleiri sterkir unglingar. Þessi skóli sýndi fádæma yfirburði á skólamótinu næstu árin. Gósentíð nágrannaskóla Taflfélagsins lauk síðan með innkomu Réttarholtsskóla, sem hafði um tíma afar sterkt lið, meðal annars með Davíð Kjartansson og Guðna Stefán Pétursson innanborðs.
Jafnframt sigrum hér heima var það nánast fastur liður lengi vel, að Íslendingar sigruðu Norðurlandamót grunnskólasveita. Það þóttu jafnvel merkileg tíðindi í norrænu samstarfi, þegar strákarnir okkar unnu ekki. Litlu breytti, þó Danir færu að smala bestu unglingunum saman í sérstakan skóla í Hammershöj á Jótlandi, þar sem skák var mikilvægur hluti af námsefninu.
Og allt frá því á áttunda áratugnum var það Ólafur H. Ólafsson, sem var potturinn og pannan í þessum samskiptum. Hann var jafnan fararstjóri á Norðurlandamótunum, ásamt því að vera þjálfari og umsjónarmaður. Hann lagði einnig til ýmislegt úr eigin vasa, en t.d. muna margir eftir gosbirgðunum í ísskápnum á Rauðarárstígnum. Það var síðan Ólafur, sem barðist allra manna harðast gegn hugmyndum nokkurra áhrifamanna í Skáksambandinu um, að hætta eða draga verulega a.m.k. úr þátttöku Íslands í norrænu unglingasamstarfi.
En við aldarlok tóku vígi unglingaskákarinnar að færast í Vesturbæinn. Um tíma var Hagaskóli öflugur á þessum vettvangi, m.a. með Stefán Kristjánsson innanborðs, en engin sveit sýndu einokunartilburði á ákveðnu tímaskeiði, eins og áður var raunin. Með nýju árþúsundi var endurvakinn sá gamli siður, að tveir skólar hefðu hreina yfirburði, en á síðustu árum hafa Laugalækjaskóli og Rimaskóli barist um sigurinn í Reykjavíkurmóti grunnskóla. Laugalækjarskóli er núverandi (2007) Reykjavíkur-, Íslands- og Norðurlandameistari grunnskólasveita, en liðsmenn skáksveitar skólans eru allir félagar í T.R. Sveitin tók þátt í Evrópumóti grunnskólasveita, sem haldið var í Búlgaríu 2006, og missti rétt naumlega af sigurlaununum, og aftur 2007. Vonandi mun þessi nýjung festa sig í sessi.
En sigurvegarar í grunnskólamótunum hafa verið eftirfarandi:
Reykjavíkurmeistarar grunnskóla
| Ár | Opinn flokkur | Stúlkur |
| 2007 | Laugalækjarskóli | |
| 2006 | | |
| 2005 | | |
| 2004 | Laugalækjarskóli | |
| 2003 | Hagaskóli | |
| 2002 | Hagaskóli | |
| 2001 | | |
| 2000 | | |
| 1999 | Seljaskóli | |
| 1998 | Réttarholtsskóli | |
| 1997 | Hagaskóli | |
| 1996 | Æfingaskóli K.H.Í. | |
| 1995 | Æfingaskóli K.H.Í. | |
| 1994 | Æfingaskóli K.H.Í. | |
| 1993 | Æfingaskóli K.H.Í. | |
| 1992 | Æfingaskóli K.H.Í. | |
| 1991 | Hólabrekkuskóli | Seljaskóli |
| 1990 | Hagaskóli | |
| 1989 | Seljaskóli | |
| 1988 | Seljaskóli | Hvassaleitisskóli |
| 1987 | Seljaskóli | |
| 1986 | Seljaskóli | |
| 1985 | Hvassaleitisskóli | |
| 1984 | Fellaskóli | |
| 1983 | Hvassaleitisskóli | |
| 1982 | Hvassaleitisskóli | |
| 1981 | Æfingadeild K.H.Í | |
| 1980 | Álftamýrarskóli | |
| 1979 | Álftamýrarskóli | |
| 1978 | Álftamýrarskóli | |