Íslandsmót skákfélaga 2006-2007: 1. deild
Taflfélagið sendi tvær sveitir til leiks í 1. deild. Nokkur forföll urðu í báðum sveitum, þó sérstaklega í a-sveitinni, sem útskýrði jafnframt veikleika b-sveitarinnar. Nefna má, að meðal annarra vantaði í sveitina fjóra íslenska stórmeistara, þar af Margeir Pétursson og Helga Áss Grétarsson, og alþjóðlega meistarann Héðin Steingrímsson. Þar að auki tefldu sumir aðrir minna en efni stóðu til, en t.d. gat Þröstur Þórhallsson ekki tekið þátt í fyrstu fjórum umferðunum vegna vinnu og Arnar E. Gunnarsson gat lítið teflt. Jafnframt hafði Taflfélagið þá nýlega misst tvo sterka alþjóðlega meistara úr röðum sínum, þá Braga Þorfinnsson og Björgvin Jónsson. Því var ljóst, að möguleikar T.R. á því, að halda bikarnum heima í Faxafeni voru afar litlir, ekki síst þar sem Hellismenn og T.V.-ingar mættu með harðsnúin lið, að hluta til skipað erlendum málaliðum.
Fyrir a-sveit Taflfélagsins tefldu eftirfarandi og má sjá árangur hverrar umferðar og hvers keppenda á úrslitasíðunni:
Fyrir b-sveit Taflfélagsins tefldu eftirfarandi, og má sjá úrslit einstakra viðureigna og keppenda á úrslitasíðunni:
|



