Póstlistaskráning
Póstlistaskráning
Skráđu netfangiđ ţitt og fáđu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá
Dagatal
September - 2010
S M Ţ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>

Taflfélag Reykjavíkur er elsta, virtasta og eitt af öflugustu skákfélögum landsins. Félagið er margfaldur Íslandsmeistari skákfélaga, síðast 2008. Aðsetur félagsins er að Faxafeni 12.


Þar er skák stunduð af miklum móð, skákmót haldin, æfingar fyrir unglinga og margt, margt fleira.

                            Fimmtudagsmótin hefjast 16. september.

Laugardagsæfingarnar hefjast 11. september.

Pistlar laugardagsæfinga veturinn 2009-2010.

 

Vefsíða Taflfélags Reykjavíkur er keyrð á vefumsjónarkerfi Allra Átta ehf.

 

 

 

 

 

 
Íslandsmót skákfélaga er betur þekkt sem Deildakeppni Skáksambands Íslands, en það nafn bar liðakeppni íslenskra skákfélaga allt frá upphafi og fram á hin síðari ár.
 
Taflfélag Reykjavíkur hefur löngum verið stærsta og sterkasta skákfélag landsins. Flestir bestu skákmenn Íslands, alla síðustu öld, störfuðu í T.R. um lengri eða skemmri tíma, flestir voru þar allt sitt líf, enda jafnan ekki um mörg félög að ræða fyrr en á síðari hluta aldarinnar. En það er til marks um yfirburðastöðu Taflfélagsins  í íslensku skáklífi, að félagið hefur klofnað oftar en Alþýðuflokkurinn, en aldrei glatað þeim sessi, að vera stærsta skákfélag landsins.
 
Fyrsta samkeppnin kom fram í félaginu Skák, sem var starfrækt um hríð um og fyrir 1910. Það rann síðan inn í T.R. og með því merkir skákmenn, eins og t.d. Ólafur Thors, síðar formaður T.R. og forsætisráðherra. En þetta var á þeim tíma, þegar liðakeppnir á milli félaga voru óþekktar. Síðar klofnaði TR, rétt við upphaf kreppunnar á fjórða áratugnum, þegar flestir sterkustu skákmenn landsins gengu úr TR og stofnuðu nýtt félag, Fjölni.
 
 
Mjölnir vort merki
 
Uppfrá því var Skákfélag Akureyrar helsti keppinautur Taflfélagsins, að minnsta kosti á vettvangi liðakeppna. Það hélt áfram inn í Deildakeppina, uns fyrsta klofningsfélagið leit dagsins ljós, Skákfélagið Mjölnir. Merkilegt er, að það hafði að miklu leyti svipaða yfirskrift og Fjölnir forðum; bæði hvað snerti nafn og eðli, en a.m.k. margir úr hópi landsliðsmanna og bestu skákmanna T.R. stofnuðu hið nýja félag. Það hampaði Íslandsmeistaratitlinum eitt árið, þá að miklu leyti skipað fyrrverandi félögum úr a-sveit T.R. Mjölnir, sem starfaði í Breiðholtinu eins og annað klofningsfélag, Hellir, var fyrir margra hluta sakir merkilegt félag, m.a. fyrir þær sakir, að á vegum þess hóf ungur drengur skákiðkun. Hann hét Hannes Hlífar Stefánsson og er nú, þegar þetta er skrifað, fyrirliðið a-sveitar Taflfélags Reykjavíkur og hefur einokað Íslandsmeistaratitilinn í hartnær áratug, með aðeins einni undantekningu.
 
En Mjölnir hætti starfsemi og Taflfélagið, sem nú fékk að senda tvær sveitir til leiks í efstu deild, ákvað að skipta félögum sínar í tvær sveitir eftir Miklubrautinni. N-V sveit T.R. var gróflega skipuð þeim félögum, sem bjuggu í núverandi norðurkjördæmi Reykjavíkur. S-A sveit T.R. var skipuð þeim, sem bjuggu sunnanmegin og í úthverfunum. Jafnan var N-V sveitin sterkari, en t.d. var Jón Loftur Árnason um hríð eini stórmeistari SA-sveitarinnar.
 
Ný félög tóku nú að skjóta upp kollinum. Taflfélagið hans Nóa var merkileg tilraun ýmissra skákmanna, sem flestir höfðu verið í T.R. áður, en Nóamenn ógnuðu aldrei veldi T.R. að neinu marki. Taflfélag Seltjarnarness sýndi um tíma af sér ógnandi tilburði, en flestir sterkustu skákmenn félagsins höfðu áður verið í T.R., meðal þeirra Hilmar S. Karlsson, skákmeistari Íslands 1983. TS hafði þá sérstöðu umfram mörg önnur félög, að reka öfluga starfsemi, en aðalsprautan var Garðar Guðmundsson, sem áður var þekktur dægurlagasöngvari og knattspyrnudómari. Nefna má, að á fyrstu árum TS einokaði ákveðinn drengur flesta unglingamótatitla TS. Sá aðili er nú vefstjóri TR-síðunnar og í stjórn Taflfélagsins.
 
 
Kraftarnir dreifast
 
En T.S. missti móðinn þegar Garðar Guðmundsson hætti og ný félög tóku að ryðjast fram á sjónarsviðið. Nokkrir öflugir meistarar úr T.R. tóku að anda að sér úthverfaloftinu og urðu Taflfélag Garðabæjar og Skákfélag Hafnarfjarðar um hríð áningarstaður þeirra. Svo fór, að T.G. vann Deildakeppnina 1992, eftir æsilega lokaviðureign.
 
Við sigur Garðbæinga og nærsveitarmanna 1992 ákvað T.R. að hætta að senda landfræðileg lið til leiks í Deildakeppninni. Svona slys mætti ekki endurtaka sig. En ný ógn hafði skapast. 1991 höfðu nokkrir vaskir drengir úr Taflfélaginu stofnað Taflfélagið Helli. Meðal þeirra voru Gunnar Björnsson, Davíð Ólafsson, Andri Áss Grétarsson og Snorri G. Bergsson, allir fæddir undir lok sjöunda áratugarins. Til Hellis leituðu margir gamlir T.S. menn og síðar Þröstur Þórhallsson, þá alþjóðameistari, en þegar hann sneri heim í T.R., fengu Hellismenn Hannes Hlífar Stefánsson frá T.R. til að fylla skarðið.
 
 
Baráttan við Hellisbúa og Hróka
 
Frá því um 1994 hefur Hellir jafnan verið helsti keppinautur T.R., bæði í almennum skilningi og á vettvangi Deildakeppninnar. Það átti ekki síst við eftir að Taflfélagið klofnaði enn og aftur, og margir sterkir meistarar gengu yfir í Helli, þeirra á meðal Jón L. Árnason, Karl Þorsteins og margir af efnilegustu skákmönnum landsins, svo sem þeir Þorfinnssynir, Bragi og Björn, og Davíð Kjartansson. Einnig hurfu á braut margir rótgrónir T.R.ingar, eins og t.d. Eyjólfur Ármannsson. Skyndilega var Hellir orðinn verðugur keppinautur.
 
Taflfélagið og Hellir börðust síðan um Íslandsmeistaratitilinn í bróðerni, uns lítið skákfélag frá bar í 101-Reykjavík tók að blanda sér í leikinn. Þetta félag fékk síðar nafnið Hrókurinn. Hróksmenn ógnuðu hvorki T.R. né Helli með innlendum leikmönnum, heldur byggðu þeir á innfluttu vinnuafli í krafti öflugra fjárráða. Þar áttu í hlut margir af sterkustu skákmönnum heims og síðan bættust við innlendir kappar eins og Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson.
 
 
Nýtt landslag
 
Skákfélagið Hrókurinn hafði yfirburðastöðu í Deildakeppni Skáksambandsins, þá Íslandsmóti skákfélaga, í nokkur ár við upphaf 21. aldar, uns félagið, með Hrafn Jökulsson í broddi fylkingar, ákvað að hætta þátttöku í Íslandsmótinu og snúa sér að útbreiðslu skákarinnar, einkum meðal barna og unglinga. Tók þá við hin fyrri barátta T.R. og Hellis um Íslandsmeistaratitilinn, en auk þeirra birtust tvö sterk lið, bæði vel blönduð af íslenskum og erlendum meisturnum. Þau voru Taflfélag Vestmannaeyja og Skákdeild Hauka, sem hafði risið úr rústum Skákfélags Hafnarfjarðar.
 

Taflfélag Reykjavíkur sigraði á Íslandsmóti skákfélaga 2006, þrátt fyrir að sveit félagsins væru eingöngu skipuð heimavarnarliðinu”, ungum og efnilegum skákmönnum, sem alist höfðu upp í félaginu. Má þar nefna alþjóðlegu meistaranna Stefán Kristjánsson, sem hafði snúið aftur úr útlegð, Héðin Steingrímsson, sem hafði nýverið hafið skákiðkun að nýju, Arnar E. Gunnarsson, Jón V. Gunnarsson og Braga Þorfinnsson. Aðeins einn stórmeistari, Þröstur Þórhallsson, tefldi þá með liðinu. Þetta var vísast í fyrsta skiptið, sem sigur T.R. í liðakeppni Skáksambandsins kom á óvart, en t.d. var lið Vestmannaeyinga að skipað sex stórmeisturunum, þeirra á meðal tveimur íslenskum.

 

 
Meðal þeirra bestu í Evrópu
 
Íslandsmeistarar Taflfélagsins héldu síðan frægðarför á Evrópumót taflfélaga og náðu þar 5.-12. sæti, sem var ótrúlegur árangur í því ljósi, að þar kepptu margir af sterkustu stórmeisturum heims og var T.R. rétt um miðja deild í styrkleikaröðun í upphafi móts. Liðið hafði jafnframt veikst frá því um vorið, þegar Bragi Þorfinnsson gekk í Helli, en í stað hans kom Snorri G. Bergsson frá Haukum.
 

En Taflfélagið náði ekki að fylgja þessum góða árangri eftir á Íslandsmóti skákfélaga 2006-2007. Hellismenn komu grimmir til leiks, með liðsauka frá útlöndum og nýkomnum innlendum meisturum. Vestmannaeyingar skörtuðu fimm stórmeisturum og einum sterkum, erlendum alþjóðameistara.

 

En T.R. mætti vængbrotið til leiks um haustið og sennilega hefur a-sveit félagsins aldrei verið veikari og einmitt þá, þegar t.d. vantaði lengst af þrjá af sex aðalmönnum frá Evrópumótinu, Þröst Þórhallsson, Héðin Steingrímsson og Arnar Gunnarsson, en sá síðastnefndi tefldi eina skák. Þröstur sneri síðan aftur í seinni hlutann, en þá átti Taflfélagið ekki lengur raunhæfa möguleika á sigri.

 
Íslandsbikarinn er því kominn í útlegð upp í Mjódd. Megi hann fara þaðan aftur hið fyrsta...og heim í Faxafenið.