Í vist hjá frú Susie
Susie Briem
Frú Susie Briem var ein af virtustu konum Reykjavíkur og hafði verið tekin algjörlega inn í samfélagið í Reykjavík. Ástæðan var sú, að landsmenn viðurkenndu þá útlendinga, sem hér settust að og aðlöguðu sig háttum hinna innfæddu. Það gerði Susie og var um hana sagt, að þar hafi íslenska þjóðin fengið góðan liðsauka. Hún talaði ágæta íslensku og las mikið, bæði nýjar bækur og gamlar. Hún var jafnframt virk í margskonar starfi, þrátt fyrir að vera tæp á heilsu, en hún hafði veikst illa fyrsta árið sitt í Nýja-Íslandi. Vísast hefur enskur uppruni frú Susie og kunnátta hennar í íslensku orðið þess valdandi, að Napier leigði hjá henni herbergi, svo ekki sé minnst á þátt meðleigjanda hans. Napier lærði hér íslensku og safnaði töluverðum upplýsingum um land og þjóð, eins og Pittsburg Dispatch, blaðið sem Napier starfaði hjá, greindi frá í desember 1902. (Hilbert, bls. 177). Vísast hefur frú Susie verið honum innan handar og sennilega sjálf tekið að sér hlutverk uppfræðarans. Af breskum aðalsættum
Afi frú Susie hét Richard Taylor og var flotaforingi í breska sjóhernum, staðsettur í Vestur-Indíum.Hann hafði komið sér upp stórum búgarði, þar sem fjöldi þræla vann erfiðustu störfin. En eins og svo margir aðrir hafði hann farið illa út úr því, þegar þrælahald var loksins afnumið og seldi hann eigur sínar og flutti til Kanada. Eiginkona Richards Taylors var af hertogaættinni af Norfolk, sem hefur jafnan verið kaþólskrar trúar. Móðir hennar hafði verið gerð arflaus fyrir að giftast manni, sem ekki var kaþólskur, en að lokum tókust sættir. Frú Taylor hélt því með fjölskylduna til Englands í heimsókn til ættingja sinna og það var þar, að Susie fæddist. Þar sem þau Susie Briem og William Ewart Napier sátu í stofunni að Lækjargötu 6a og ræddu saman, hafa þau haft nóg að tala um. Saga þeirra var að mörgu leyti ekki svo ólík. Bæði voru af enskum ættum og fæddust í Englandi, en ólust upp í Vesturheimi; Susie í Kanada en Napier í Bandaríkjunum. Hollywood Ætt Susie Briem tengdist Hollywood, en systir hennar, Caroline, var gift Sigurði
Nonni Frú Susie Briem tengdist einnig þjóðþekktum Íslendingum, utan Briems-ættarinnar. Föðurbróðir hennar, John Taylor, hafði alið hana upp, frá því að móðir hennar lést. Hann var þrígiftur, en síðasta kona hans var frú Sigríður, móðir séra Jóns Sveinssonar, „Nonna”. Þannig voru Susie og Nonni í raun stjúpsystkin. |





