William Ewart Napier stóð í ströngu fyrri hluta árs 1902. Hann tefldi m.a. á tveimur sterkum skákmótum, þýska meistaramótinu og síðan ofurmótinu í Monte Carlo. MonteCarlo1902.cbv -- hér má sækja skákirnar frá Monte Carlo mótinu!
Hann lauk stífri dagskrá og hélt til Lundúna, þar sem hann tefldi mjög merkilega skák gegn manni, sem ekki er vitað nafnið á. Napier hafði hvítt: 1.e4 e5 2.Rf3 Rc6 3.Bb5 f5 4.Rc3 fxe4 5.Rxe4 Rf6 6.Rxf6+ gxf6 7.0–0 d6 8.d4 Bd7 9.dxe5 Rxe5 10.Rxe5 dxe5 11.Dh5+ Ke7 12.Hd1 c6 13.Bc4 De8 (stöðumynd) ![]() 14.Dxe5+ fxe5 15.Bg5 mát.
Í gagnagrunninum Megabase verður hlé á skráðum skákum Napiers frá Monte Carlo mótinu og fram til 1904, þegar hann tók þátt í hinu fræga skákmóti Cambridge Springs. Talað hefur verið um, að tíminn þar á milli, frá því síðsumars 1902 og fram til 1904, sé gleymdi tíminn í skákferli hins gleymda snillings. Svo var þó ekki alveg. Hann fór frá London síðsumars 1902 og hélt til Skotlands. Þaðan hélt William Ewart Napier um borð í Vestu 9. september og, eftir að skipið hafði stöðvað för sína á stöku stað, eins og vaninn var í þá daga, steig hann á land í Reykjavík hinn 17. september 1902.
Napier var kominn til Íslands
Heimildir:
|





