Fiske og stofnun T.R. Taflfélag Reykjavíkur var stofnað 6. október 1900 í húsi Jóns Sveinssonar, um það bil á horni Pósthússtrætis og Kirkjustrætis. Félagið var alls ekki burðugt til að byrja með. Þrátt fyrir, að stofnendur þessi hafi verið úr efri stéttum Reykjavíkur, voru fjárráð afar takmörkuð, eins og jafnan hefur verið síðan. Taflfélagsmenn gátu þó reitt sig á stuðning Daniel Williard Fiskes, hins mikla velgjörðarmanns íslenskra skákmanna og skákarinnar almennt hér á landi. Það var fyrst og fremst fyrir hans tilstilli, að Taflfélag Reykjavíkur var stofnað og hitt, að það lifði af fyrstu árin.
Pétur Zóphóníasson, sem gekkst fyrir stofnun T.R., hafði einmitt farið að hitta Fiske, áður en hann hélt til Íslands og rætt málin við hann. Óhætt er að fullyrða, að Fiske hafi verið með í ráðum, þegar Taflfélagið var stofnað og jafnvel verið þess það hvetjandi, að Pétur hafi þorað að hrinda félaginu af stokkunum. En hvað sem þessu leið hafði ekki langur tími liðið frá stofnun T.R., þegar sending barst frá Fiske. Útilokað er, að Fiske hefði getað sent Taflfélaginu þessa höfðinglegu gjöf sína þá, nema að hafa vitað um stofnun þess fyrirfram.
Í Ísafold 15. desember eru málefni Taflfélagsins rædd, enda var Ólafur Björnsson, Jónssonar ritstjóra, einn af stofnendum félagsins. Þar segir, að Taflfélag Reykjavíkur heiti “nýjasta félagið hér í höfuðstaðnum – eða annað nýjasta. Þau fæðst sem sé minst 10 um árið.” Stjórnin sé vel skipuð þeim Sigurði Jónssyni fangaverði, Sturlu Jónssyni kaupmanni og Pétri Zóphóníassyni verslunarmanni. Stofnendur hafi verið um 30. Félagið haldi fundi sína einu sinni í viku, á laugardagskvöldum kl. 20.00.
Félagið hafði verið stofnað í húsi Jóns Sveinssonar og þar hélt það fundi sína, nánar tiltekið í kaffisölu Sigríðar, dóttur Sigurðar formanns Jónssonar. Þar fékk Taflfélagið að halda “fundi” og borgaði litla leigu, en skákmennirnir urðu að “kaupa eitthvað”, segir Pétur Zóphóníasson í grein sinni um upphafsár T.R. í 50 ára afmælisriti félagsins.
|




