Póstlistaskráning
Póstlistaskráning
Skráđu netfangiđ ţitt og fáđu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá
Dagatal
September - 2010
S M Ţ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>

Taflfélag Reykjavíkur er elsta, virtasta og eitt af öflugustu skákfélögum landsins. Félagið er margfaldur Íslandsmeistari skákfélaga, síðast 2008. Aðsetur félagsins er að Faxafeni 12.


Þar er skák stunduð af miklum móð, skákmót haldin, æfingar fyrir unglinga og margt, margt fleira.

                            Fimmtudagsmótin hefjast 16. september.

Laugardagsæfingarnar hefjast 11. september.

Pistlar laugardagsæfinga veturinn 2009-2010.

 

Vefsíða Taflfélags Reykjavíkur er keyrð á vefumsjónarkerfi Allra Átta ehf.

 

 

 

 

 

Búkarest 1987

Taflfélagið tók í fyrsta skipti þátt í Meistaradeild Evrópu, sem þá var reyndar bikarkeppni, 1987. Eftirfarandi frásögn er tekin frá Hróknum, fréttablaði T.R. Vefstjóri bætti inn millifyrirsögnum og innsláttarvillum.

 

 

Fyrsta Evrópulið T.R. valið

 
Stjórn félagsins kaus nefnd til að velja lið keppninnar. Í nefndinni voru Jón G. Briem, Ólafur H. Ólafsson, Jóhannes Ágústsson og Lárus Jóhannesson.  Velja skyldi 12 manna sveit en af þeim tefldu 6 í hverri umferð. Sveitin var þannig skipuð (eftir borðaröð):
 
  • Helgi Ólafsson,
  • Jóhann Hjartarson,
  • Jón L. Árnason,
  • Margeir Pétursson,
  • Friðrik Ólafsson,
  • Guðmundur Sigurjónsson,
  • Karl Þorsteins,
  • Þröstur Þórhallsson,
  • Sævar Bjarnason,
  • Hannes Hlífar Stefánsson,
  • Elvar Guðmundsson,
  • Davíð Ólafsson.
 
Meðalstig sveitarinnar voru 2436.
 
Þá var skipuð önnur nefnd til að sjá um framkvæmd keppninnar fyrir félagið. Í þeirri nefnd voru Jón G. Briem, Gylfi Gautur Pétursson og Jóhannes Ágústsson.
 
 
Evrópusveitin gegn Rúmenum
 
Í fyrstu umferð keppninnar dróst sveit TR gegn rúmensku meisturunum Politehnic Bucarestii. Teflt skyldi í Búkarest. Samkomulag varð að tefla 29. og 30. maí 1987. Í skáksveit félagsins í fyrstu umferð völdust:
 
  • Helgi Ólafsson,
  • Jóhann Hjartarson,
  • Jón L. Árnason,
  • Margeir Pétursson,
  • Guðmundur Sigurjónsson,
  • Karl Þorsteins,
  • Þröstur Þórhallsson varamaður.
 
Fararstjóri og fyrirliði var Jón G. Briem formaður Taflfélags Reykjavíkur.
 
 
Ferðalagið til Búkarest
 
Ferðalagið til Búkarest gekk vel. Þegar lent var á flugvellinum þar tóku á móti hópnum þeir D.Drimer og Drughean formaður skákfélagsins sem teflt skyldi við. Þeir og aðrir sem að undirbúningnum og móttöku stóðu voru hinir hjálplegustu í alla staði. Hópurinn bjó í hóteli sem Politehnica háskólinn á. Það var mjög óvistlegt og illa búið.


Teflt var í einni af byggingum háskólans. Þangað var u.þ.b. 10 mínútna gangur frá hótelinu. Keppnissalurinn var lítill leikfimissalur sem hafði verið teppalagður. Aðstæður þar voru alveg viðundandi.
 

 

Viðurgerningur í mat og drykk var frekar einhæfur.  Þó má segja að almennt hafi menn fengið nægju sína. Gestgjafarnir buðu okkur í skoðunarferðir um borgina og voru þær fróðlegar. Ljóst var þó að líf fólks í borginni var mjög fábreytilegt og lífskjör langt fyrir neðan það sem við þekkjum.

 
 
Úrslit keppninnar
 

Úrslit keppninnar urðu þau að jafntefli varð, 6 vinningar gegn 6. Rúmenska sveitin hlaut 22,5 stig en sveit T.R. 19,5 stig. Þar með komust Rúmenar áfram í keppninni.
 

 

Úrslit á einstökum borðum:

 
Taflfélagið Reykjavíkur - Politehnic Bucrestii 1987
1Helgi Ólafsson1-1M. Ghinda
2Jóhann Hjartarson1-1V.Stoica
3Jón L. Árnason1-1T. Ghitescu
4Margeir Pétursson0-2M. Marin
5Guðm. Sigurjónsson1,5-0,5O.Berecht
6Karl Þorsteins1,5-0,5T.Stanciu
 


Skákstjóri og dómari var A. Vrabie og honum til aðstoðar M. Anghel.Þeir eru báðir alþjóðlegir skákdómarar og Vrabie þekktur sem slíkur. Hnn sinnti sínu hlutverki með soma.
 
 
Eftirmáli

 
Að keppninni afstaðinni er rétt að staldra við og athuga árangurinn. Að sjálfsögðu eru menn ekki ánægðir með að falla úr keppninni. Skáksveit félagsins er miklu sterkari en skáksveit andstæðinganna. En í þetta sinn gekk illa í skákunum og segja verður að úrslitin hafi verið sanngjörn.
 
En þátttakan var ekki gagnslaus þrátt fyrir þetta. Í ljós kom að unnt er að fjármagna keppni sem þessa. Ýmis fyrirtæki sýndu mikinn velvilja þegar til þeirra var leitað um fjárstuðning. Ég tel því vel mögulegt að taka þátt í keppninni aftur síðar.
 
Annar árangur náðist einnig. Bestu skákmenn félagsins tefldu nú loksins allir saman í sveitakeppni fyrir þess hönd. Þeir höfðu lengi haft mikinn áhuga á þessu. Líklegt má telja að samskipti félagsins við þennan hóp skákmanna hafi batnað verulega. Slíkt hlýtur að verða félaginu til gagns.

 
 
Jón G. Briem: „Evrópubikarkeppni taflfélaga 1987-1988”, Hrókurinn 1988, bls. 14.