Póstlistaskráning
Póstlistaskráning
Skráđu netfangiđ ţitt og fáđu tilkynningar sendar í tölvupósti
Nafn
Afskrá
Dagatal
September - 2010
S M Ţ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2
<
>

Taflfélag Reykjavíkur er elsta, virtasta og eitt af öflugustu skákfélögum landsins. Félagið er margfaldur Íslandsmeistari skákfélaga, síðast 2008. Aðsetur félagsins er að Faxafeni 12.


Þar er skák stunduð af miklum móð, skákmót haldin, æfingar fyrir unglinga og margt, margt fleira.

                            Fimmtudagsmótin hefjast 16. september.

Laugardagsæfingarnar hefjast 11. september.

Pistlar laugardagsæfinga veturinn 2009-2010.

 

Vefsíða Taflfélags Reykjavíkur er keyrð á vefumsjónarkerfi Allra Átta ehf.

 

 

 

 

 

Saga T.R.

Ritað í tilefni 100 ára afmæli félagsins 6. október 2000

Taflfélag Reykjavíkur var stofnað 6. október árið 1900 og heldur félagið því upp á 100 ára afmæli sitt á árinu 2000. 


Einn af stofnendum félagsins, Pétur Zóphóníasson, segir í grein sinni í afmælisriti T.R. 1950 að á stofnfundi félagsins hafi mætt 29 menn, sem gengu í Taflfélag Reykjavíkur og síðan var kosin stjórn félagsins sem auk hans skipuðu, Sigurður Jónsson, formaður og Pétur Pétursson, bæjargjaldkeri. Margir merkir menn gengu í félagið og léðu því stuðning s.s. Ólafur Thors ráðherra og Daniel Willard Fiske, sem gaf félaginu sín fyrstu Staunton-skáksett.


Helstu markmið hins nýja félags voru að eignast skáksett, efna til skákmóta og standa fyrir skákkennslu. Þó nú séu nær 100 ár síðan félagið var stofnað og félagsmenn orðnir á sjötta hundrað er ljóst að markmið hins gamla félags standa enn fyrir sínu. 

Helstu markmið Taflfélags Reykjavíkur í dag eru að standa fyrir skákmótum fyrir unga sem aldna. Auk þess er lögð rík áhersla á að efla skákiðkun meðal barna og unglinga og gefa skákmönnum tækifæri á að tefla á erlendri grundu og fá hingað til lands öfluga erlenda skákmeistara. Til að uppfylla þessi markmið hefur félagið staðið fyrir fjölda skólaskákmóta, haldið alþjóðleg skákmót og stutt félagsmenn sína til þátttöku á skákmótum erlendis.